Sælar elskurnar mínar
Búin að sakna mín?

Jæja, nú eru 6 dagar í djamm ársins á Íslandi, og mig er farið að hlakka ofboðslega mikið til

Tók smá forskot á sæluna í gær og skrapp á pöbbann, ekki mikið um að vera þar, einhver arfaslök grúppa á Lundanum og þegar ég fór út af Þrastarbar var Ellý Vilhjálms í spilaranum, hef reyndar grun um að það hafi verið gamalt þjóðhátíðarlag sem var þar á ferðinni


En að öðru þessu tengt, gamla góða gengið að norðan er búið að tilkynna komu sína og ég er bara hæstánægður með það

Þetta eru orðin hvað, 5 ár eða eitthvað síðan við höfum verið svona mörg úr hópnum saman á þjóðhátíð. Vantar reyndar Robba og Sigga Mel

Við eigum eftir að skemmta okkur konunglega í Dalnum, og for your information, ykkar sem koma á þjóðhátíð, þá verð ég með hvítt tjald innfrá, nánari upplýsingar um staðsetninguna á fimmtudag í næstu viku þegar búið er að tjalda.
Mikið asskoti er ég orðinn leiður á þessu sjókjaftæði, ekkert fiskirí og ekkert gaman, komum í land á þriðjudag, náðum að vísu í einn gám af karfa en held að það bjargi litlu

Mikið að spá að fara að leita annað, nenni þessu ekki, fyrir utan að ég get ekki borgað skuldir ef enginn peningur er til.
Hættur að skrifa í bili, alveg tómur núna
Þangað til næst
Vaya Con Dios
Höddi
P.S Tékkið á tenglinum sem er á aðalsíðunni, Teiknarinn.is Snillingur þar á ferð þegar teikningar eru annars vegar:þ